Fljótlegir réttir
Fyrir 4
600 g svínabringa skorin í 1/2 cm
þunnar sneiðar
4 stórir laukar
750 g græn epli
Ferskt eða þurrkað timjan
Salt og pipar
Meðlæti: Rúgbrauð
Þerrið kjötið með eldhúspappír. Kryddið með pipar. Hitið steikarpönnu við mikinn hita. Brúnið kjötið í u.þ.b. 1 mínútu á hvorri hlið. Lækkið hitann og steikið þar til kjötið er orðið stökkt. Fjarlægið kjötið af pönnunni og stráið yfir það salti. Hellið megninu af feitinni af pönnunni. Skerið lauka í þunnar sneiðar og eplin í þunna báta. Steikið laukinn og eplin á pönnunni í 1-2 mínútur. Kryddið með timjan, salti og pipar og leggið kjötsneiðarnar ofan á.
Berið fram með rúgbrauði og smjöri.
Meira
